Margar brælur og fáar loðnur
Síðastliðinn þriðjudag fengum við síðasta aflann okkar, um 800 tonn. Við lönduðum því á miðvikudag og kláraðist löndun aðfararnótt fimmtudags. Óveðrið sem geyst hefur í Eyjum var skollið á þegar við létum úr höfn og ekki var gott að komast út á skipinu enda skyggni nánast ekkert og hávaða rok. Svo fór að skipið komst klakklaust á sjó og Eyjuna fennti í kaf.
Við stímdum beinustu leið inn á Faxaflóa og komum hingað í gærdag. Ekkert veiðiveður var svo að lónað var yfir flóann og upp undir nesið í skjól. En ekki er veðrið eini orsakavaldurinn fyrir því að ekki er mikið veitt. Hér á Faxaflóanum er bara ekki mikla loðnu að sjá og rúntuðu skipin hér um í dag án þess að sjá mikið, hvað þá nóg fyrir allan flotann að liggja í. Ætli sú loðnuganga sem við höfum verið að veiða úr sé ekki bara búin að dreifa úr sér og fer að fara að hrygna, fyrir utan það að þá var ekki um mikið magna að ræða og held ég að þessi ganga hafi mælst 30.000 tonn. En það er hangið á þessari göngu eins og hægt er enda er þessi loðna komin hvað lengst í hrognafyllingu og þroska og af þeim sökum verðmætust. En það kemur auðvitað að því að sú loðna sem er við suðurströndina verði nógu þroskuð að hægt verði að veiða úr þeirri göngu.
Spáin er ekki spennandi fyrir daginn í dag og ósköp lík veðrinu sem var hér í gær. Hvort að hægt verði að veiða er ekki gott að segja en maður bindur vonir um að einhverja loðnu verði hægt að finna nær landinu og í skjóli. Veður fer svo hratt batnandi þegar komið er á helgina og snýr þá vindáttin sér í suður og hlýnar í veðri. Sú hlýnun er kærkomin enda búið að vera fremur kalt á Faxaflóanum undanfarna daga.
Eldra blogg
- 3. febrúar kl.07:26 | eyjar.netLandeyjarhöfn, staðan
- 2. febrúar kl.11:06 | eyjar.netMinnir á frásögn Guðlaugs fyrir 28 árum
- 24. janúar kl.11:50 | eyjar.netEr eðlilegt að verkamaður þurfi að vinna í 3 vikur bara til að borga framlag sinnar fjölskyldu til Hörpunnar?
- 10. janúar kl.15:48 | eyjar.netEyjamaður ársins og annað fólk sem skaraði framúr í Eyjum árið 2011
- 9. janúar kl.09:19 | eyjar.netSjófuglar í Vestmannaeyjum
- 30. desember kl.08:10 | eyjar.netÁramót 2011/12
- 16. desember kl.10:54 | eyjar.netAurakrókur sá fimmtándi, gírugur á kontórnum situr
- 15. desember kl.09:33 | eyjar.netStúkustaur var vaskur
- 14. desember kl.08:35 | eyjar.netKjaftakýlir mætir þá ef börnin verða óþæg
- 13. desember kl.08:43 | eyjar.netGubbólfur sá tólfti


