Vanilluís grunnuppskrift
Með stuttum könnunarleiðangri um búrskápana má ef til vill finna eitthvert góðgæti sem tilvalið er að blanda út í ísinn eða skreyta hann með. Það mætti til dæmis mylja kex eða sælgæti ýmiss konar út í ísinn, rífa súkkulaði eða bræða yfir hann, marínera rúsínur í rommi og bæta út í. Einnig er tilvalið að bæta við berjum, rista hnetur eða saxa niður þurrkaða ávexti. Þetta þarf að hræra út í ísblönduna áður en hún frýs. Möguleikarnir eru fjölmargir og kannski hittirðu á þína einu sönnu uppskrift með því að prófa þig áfram. Hver veit...
Matreiðsluleiðbeiningar
Aðferð:
Skerið vanillustöngina í tvennt eftir endilöngu og skafið fræin innan úr henni. Setjið bæði fræ og stöng í pott ásamt matreiðslurjómanum og hitið að suðu en látið þó ekki sjóða.
Þeytið á meðan eggjarauður og sykur saman í skál. Hellið svo vanillurjómanum rólega saman við eggjarauðurnar og hrærið stöðugt í á meðan. Hellið öllu í pottinn aftur. Hafið hitann mjög vægan og hrærið stöðugt. Takið pottinn af hitanum þegar blandan fer að þykkna aðeins, hellið henni gegnum sigti í skál og látið kólna vel.
Léttþeytið rjómann og hrærið hann gætilega saman við ísblönduna. Hellið síðan blöndunni í ísvél og frystið. Ef ekki er notuð ísvél er ísinn frystur í formi og síðan tekinn út eftir hálftíma og hrært vel í. Svo er hann settur aftur í frysti, tekinn út eftir í hálftíma og hrært í. Þetta þarf að endurtaka 3-4 sinnum.
Vanilluís grunnuppskrift
1 vanillustöng
250 ml matreiðslurjómi
5 stk. eggjarauður (5-6)
150 g sykur
250 ml rjómi
Eldri uppskriftir
- 30. ágúst kl.11:45 | eyjar.netÞorskur í karrysósu með eplum, lauk og hrísgrjónum
- 14. april kl.12:05 | eyjar.netThai-kjúklingur
- 30. mars kl.09:30 | eyjar.netGrænmeti að hætti franskra
- 15. desember kl.10:31 | eyjar.nethamborgarhryggur
- 10. desember kl.12:35 | eyjar.netRiz á l´amande og karamellusósa
- 26. október kl.16:57 | mbl.isPizza með nautahakki og þremur ostum
- 4. október kl.13:36 | eyjar.netKjúklingur með sólþurrkuðum tómötum
- 13. september kl.13:20 | eyjar.netIndónesísk súpa
- 25. ágúst kl.07:17 | eyjar.netKjúklingabringur með rósapipar
- 3. ágúst kl.20:43 | eyjar.netKjúklingur með ananas


