Spagettí með sveppum
paghetti með sveppum
Fyrir 2-3
* 150 gr þurrt spaghetti (helst spelt en annars heilhveiti)
* 1 laukur, saxaður
* 500 gr sveppir, skornir í þunnar sneiðar eða í nokkra bita (má vera hvoru tveggja til að hafa smá fjölbreytni í áferð)
* 25 gr þurrkaðir sveppir (t.d. blanda af Shitake og Porcini sveppum).
* Nóg af heitu vatni til að þekja sveppina.
* Látið þurrkuðu sveppina liggja í bleyti í 30 mínútur (ekki hella vatninu af)
* 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
* Nokkrar matskeiðar af ferskum, nýrifnum parmesanosti (má sleppa)
* 1 tsk þurrkuð steinselja (enska: parsley)
* 1 msk kókosfeiti eða ólífuolía
* Heilsusalt (Herbamare) og hellingur af svörtum pipar
* 1 tsk tamarisósa eða soyasósa
Aðferð:
* Sjóðið spaghettiið og hafið tilbúið um leið og sveppirnir eru tilbúnir þ.e. þannig að það sé heitt.
* Steikið laukinn í kókosfeiti eða ólífuolíu og vatninu af þurrkuðu sveppunum. Steikið þangað til laukurinn verður mjúkur.
* Bætið hvítlauknum út í og látið krauma í 1 mínútu.
* Bætið þurrkuðu sveppunum saman við ásamt smávegis af vatninu. Gætið þess að steikja þá alveg þannig að þeir steikist í gegn.
* Bætið hinum sveppunum út í.
* Kryddið með heilsusalti, svörtum pipar, steinselju og tamarisósu. Það er ágætt að sveppirnir verði frekar saltir þar sem þeir eru það eina sem gefur bragð í réttinum.
* Setjið spaghetti á diska og hellið sveppablöndunni ofan á. Magn fer eftir smekk.
* Skreytið með smá steinselju og parmesanosti.
* Gott er að bera fram snittubrauð með þessum rétti.
* Einnig má hita spaghettiið með sveppunum eftir að spaghettiið er tilbúið.
Eldri uppskriftir
- 30. ágúst kl.11:45 | eyjar.netÞorskur í karrysósu með eplum, lauk og hrísgrjónum
- 14. april kl.12:05 | eyjar.netThai-kjúklingur
- 30. mars kl.09:30 | eyjar.netGrænmeti að hætti franskra
- 15. desember kl.10:31 | eyjar.nethamborgarhryggur
- 10. desember kl.12:35 | eyjar.netRiz á l´amande og karamellusósa
- 26. október kl.16:57 | mbl.isPizza með nautahakki og þremur ostum
- 4. október kl.13:36 | eyjar.netKjúklingur með sólþurrkuðum tómötum
- 13. september kl.13:20 | eyjar.netIndónesísk súpa
- 25. ágúst kl.07:17 | eyjar.netKjúklingabringur með rósapipar
- 3. ágúst kl.20:43 | eyjar.netKjúklingur með ananas


