19. maí kl.12:23 | eyjar.net
Svartfugl á flugi, skotinn niður af Bóbó og eldaður
Það sem þarf í réttinn er eftirfarandi:
4-6 vel snyrtar svartfuglsbringur, 300 gr. humar eða skötuselur, 1 box jarðarber, 1 grein græn vínber, 1 bréf beicon, 1 bréf El toro nautavöðvi frá Goða, 1 bátur vatnsmelóna, 1/4 iceberghöfuð, 1/2 gul paprika, 1 poki lambasalat, 1 bóndabrie, 1/4 poki rucola, 1/4 krukka fetaostur í kryddlegi, handfylli pistasíuhnetum, 2 ferskar fíkjur, 3 hvítlauksgeirar, Maldonsalt, La Chou teryaki mariande, balsamik síróp, sítrónu- eða truffluolía, smjör og hlynsíróp.
Svo hefst matreiðslan:
Munið að skola berin og grænmetið vel upp úr köldu vatni. Leggið bringurnar í Teryaki marinade í 2 tíma. Brúnið þær báðum megin á pönnu upp úr smjöri, takið þær síðan af og vefjið inn í álpapappír. Látið bíða í 20 mínútur á eldhúsbekknum. Skerið í þunnar hæfilegar sneiðar og látið kólna. Steikið beiconið stökkt á pönnu og þerrið á eldhúspappír. Hver sneið fer í 3-4 bita.
Skerið humar eða skötusel í litla bita. Pressið hvítlaukinn á pönnu með smjöri og smá Maldonsalti. Veltið fiskinum upp úr þessu í 1 mínútu, takið af og kælið. Skerið bóndabrie í hæfilegar lengjur og rúllið El toro nautavöðvanum utan um og skerið í 2 bita.
Skerið vínberin og jarðarberin í tvo til þrjá bita eftir stærð berjanna. Skerið vatnsmelónubitana í jafn stóra bita og paprikuna langsum í hæfilega bita. Hitið pönnu og látið handfylli af pistaníuhnetum á pönnu, ristið, takið af og setjið á disk og hellið hlynsírópi yfir. Kælið.
Veljið fallega, stóra, aflanga skál eða fat, hafið allt hráefnið tilbúið fyrir framan ykkur og byrjið að raða smekklega á. Það má segja að þetta séu þrjú lög af hráefni. Geymið fallegustu bitana til að hafa efst. Inn á milli má láta drjúpa aðeins af sítrónu eða trufflu ólífuolíunni, en alls ekki og mikið. Sama má segja um hnífsodd af Maldonsalti. Setjið að lokum nokkra dropa af balsmik sírópi. Skerið fíkjunar og setjið efst eða í hornin til skreytinga.

Úr bókinni Meistarinn og áhugamaðurinn.
Samantekt, Pétur Steingríms.
www.bjarnarey.is
Eldri uppskriftir
- 30. ágúst kl.11:45 | eyjar.netÞorskur í karrysósu með eplum, lauk og hrísgrjónum
- 14. april kl.12:05 | eyjar.netThai-kjúklingur
- 30. mars kl.09:30 | eyjar.netGrænmeti að hætti franskra
- 15. desember kl.10:31 | eyjar.nethamborgarhryggur
- 10. desember kl.12:35 | eyjar.netRiz á l´amande og karamellusósa
- 26. október kl.16:57 | mbl.isPizza með nautahakki og þremur ostum
- 4. október kl.13:36 | eyjar.netKjúklingur með sólþurrkuðum tómötum
- 13. september kl.13:20 | eyjar.netIndónesísk súpa
- 25. ágúst kl.07:17 | eyjar.netKjúklingabringur með rósapipar
- 3. ágúst kl.20:43 | eyjar.netKjúklingur með ananas
Sölu- og markaðstorg
Yaris 2006
17. maí kl. 13:44 | FarartækiEr með Yaris 2006 árgerð til sölu , silfurgrár á nýlegum dekkjum
Ekinn 117 þús km og vel m...
TS Skiptiborð+dýna+áklæði
16. maí kl. 09:58 | HúsgögnEr með skiptiborð úr IKEA: http://www.ikea.is/products/1911 dýnu: http://www.ikea.is/products/70...
íbúð/herbergi óskast
15. maí kl. 23:52 | Til leiguVið erum par sem erum að koma til eyja til að vinna. Okkur vantar íbúð eða herbergi til að l...
Óska eftir íbúð í langtímaleigu!
15. maí kl. 11:33 | Til leiguÞriggja manna fjölskylda leitar að a.m.k. 3 herbergja íbúð til langtímaleigu frá júní/júl...
******Húsnæði til leigu yfir Shellmót*****
15. maí kl. 10:09 | Til leiguDaginn
Er með stórt einbýlishús til leigu yfir Shellmótið.
sendið á eyjagisting@gmail.com ...
Óska eftir kommóðu eða nettum fataskáp.
14. maí kl. 23:41 | HúsgögnVantar svo kommóðu eða fataskáp.. á einhver svoleiðis til að selja mér...
Óskast eftir íbúð til leigu yfir sumarið!
14. maí kl. 20:24 | HúsnæðiMig sárvantar íbúð til leigu í sumar í eyjum, ég og kærastinn minn erum að vinna í allt su...